Um verkefnið
Í byrjun árs fór ný og spennandi lausn í loftið sem nefnist Fókus. Með sérhönnuðum símapoka og segulopnara færð þú tólið sem þarf til að leggja símann loksins frá þér, hvíla dópamínkerfið og njóta augnabliksins án truflana.
Ásýnd og ímynd Fókus var unnin frá grunni með það að markmiði að höfða til yngri kynslóðarinnar og skólaumhverfis. Mascot-lógóið okkar, appelsínuguli lásinn, spilar þar aðalhlutverk og gefur vörumerkinu vinalegt og líflegt yfirbragð sem grípur augað.
Litapallettan einkennist af hlýjum rjómahvítum tónum, jarðbundnum brúnum og kraftmiklum appelsínugulum lit sem undirstrikar orku og hvatningu. Öll grafísk hönnun, hreyfihönnun og upplifun á meirifokus.is miðar að því að búa til nútímalegt vörumerki sem talar beint til þeirra sem vantar meiri samveru og minni skjátíma.
Gefum huganum hvíld — Fókus!






